






Kokuyo Minnispennasett sem hjálpar þér við lærdóminn!
Í þessu setti færðu tvo penna og rauða filmu sem hjálpar þér við að leggja orð á minnið eða við lestur þar sem þú þarft að leggja upplýsingar á minnið
Einn penninn er með tveimur oddum, einum fineliner sem er appelsínugulur sem þú getur notað til að glósa orð sem þú þarft að muna - þegar þú leggur rauðu filmuna yfir þau orð þá hverfa þau!
Græni highlighter endinn er notaður á texta sem er nú þegar skrifaður, t.d. í kennslubók - þegar þú leggur rauðu filmuna yfir hverfur sá texti. Þessi græni litur blæðir ekki svo auðveldlega í gegnum blaðsíðuna svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur
Hinn penninn er glær og er ætlaður til að stroka út græna blekið úr hinum pennanum - hann hentar eingöngu fyrir hinn pennann (ekki aðra frá öðrum vörumerkjum). *Athugið að ef þið hafið nú þegar strokað út einu sinni er ekki hægt að stroka út aftur.
---
GOOD TOOLS vörulínan frá KOKUYO JAPAN samanstendur af ritföngum sem eru fallega minnimalísk og auðveld í notkun! Því ættu þær vörur að henta breiðum hópi fólks sem elskar góð og falleg ritföng!
Choose options






